Engar bætur,
engin þóknun.
Snör og trygg innheimta slysabóta. Við sækjum bæturnar þínar — og fáum aðeins greitt þegar þær innheimtast.
Áhættan er okkar, ekki þín.
- Frír fyrsti fundur
- Engin skuldbinding
- Lögmaður sækir málið
- 517-3100
Frá fyrirspurn að greiddum bótum
Skýrt ferli án óvissu. Þú berð engan kostnað nema bætur innheimtist.
Hafðu samband
Sendu fyrirspurn eða hringdu. Við svörum fljótt og án skuldbindinga.
Frír fundur
Við metum réttarstöðu þína og förum yfir gögnin með þér — þér að kostnaðarlausu.
Við sækjum bæturnar
Við önnumst innheimtuna og förum með málið fyrir dóm ef á þarf að halda.
Þú færð greitt
Bæturnar eru gerðar upp við þig. Við fáum aðeins þóknun af innheimtum bótum.
Hvers konar tjón sinnum við?
Veldu flokkinn sem á við þitt mál — það kostar ekkert að kanna réttinn.
Umferðarslys
Líkamstjón í umferðarslysi veitir í flestum tilfellum rétt á bótum — óháð því hvort þú varst í rétti eða órétti.
Lesa meira →Frítímaslys
Flestir eru með heimilis- eða fjölskyldutryggingu sem inniheldur frítímaslysatryggingu. Réttur kann að vera til staðar.
Lesa meira →Læknamistök
Bótaréttur kann að vera til staðar verði líkamstjón af völdum meðferðar, rannsókna eða fylgikvilla.
Lesa meira →Líkamsárás
Líkamsárás er bótaskyld og þolandi getur sótt bætur frá geranda að uppfylltum tilteknum skilyrðum.
Lesa meira →Vinnuslys
Vinnuslys eru algeng, bæði til sjós og lands. Tjónþoli á oft ríkari rétt en hann gerir sér grein fyrir.
Lesa meira →Veistu ekki?
Ekki viss í hvaða flokk málið þitt fellur? Sendu okkur fyrirspurn og við metum það fyrir þig — án kostnaðar.
Senda fyrirspurn →Góð vinnubrögð leiða til góðrar niðurstöðu
„Ég vissi ekki að ég ætti yfirhöfuð rétt. Þau sáu um allt og ég þurfti ekki að hafa áhyggjur af neinu.“
„Skýr svör á hverju stigi og engin óvissa um kostnað. Faglegt og mannlegt frá upphafi til enda.“
„Ég borgaði ekkert fyrr en bæturnar voru komnar. Það gerði allt skrefið auðveldara að taka.“
Umsagnir eru birtar með samþykki og nöfnum sleppt af tillitssemi.
Gjaldfrjáls fundur
Fyrsta viðtal hjá Tjónið.is er ókeypis og án skuldbindinga. Þóknun er að öllu leyti árangurstengd og kemur einungis til greiðslu þegar bætur hafa verið innheimtar.
- Hafðu öll gögn meðferðis fyrir fundinn
- Við metum réttarstöðu þína án kostnaðar
- Engin skuldbinding að loknum fundi
Hringdu eða sendu okkur línu — við svörum öllum erindum eins fljótt og hægt er.
Reynt teymi sem heldur utan um málið þitt
Emilía Guðbjörg Mikaelsdóttir
Tekur á móti öllum umsóknum. Lauk BSc og ML í viðskiptalögfræði við Háskólann á Bifröst og hefur mikla reynslu af slysamálum. Sér til þess að málin komist í réttan farveg og öll gögn séu til staðar.
Lesa meira → um Emilía Guðbjörg Mikaelsdóttir
Eva Margrét Ásmundsdóttir
Sér um uppgjör við tjónþola og tryggir að frágangur og afgreiðsla mála sé rétt upp á punkt og kommu. Eva er löggildur fasteignasali og reynd í fjárhagslegum uppgjörum auk þess að gæta þess að það sé ekki komma þar sem koma skal punktur!
Lesa meira → um Eva Margrét ÁsmundsdóttirEf slysamál fara fyrir dóm eru þau sótt af lögmönnum ESJA Legal ehf.
Uppfærslur frá Tjónið
Nýjustu færslur og tilkynningar eru á Facebook-síðu stofunnar, facebook.com/tjonid.
Fylgstu með færslum, dæmum og tilkynningum á Facebook-síðu stofunnar.
Fylgjast með á FacebookAlgengar spurningar
Þóknun er að öllu leyti árangurstengd. Þú greiðir ekkert nema bætur innheimtist — engar bætur, engin þóknun. Gjaldskrá og skilmála má finna á esl.is/gjaldskra.
Bótaréttur í umferðarslysum er ríkur hérlendis og skiptir í flestum tilfellum ekki máli hvort þú varst í rétti eða órétti. Réttast er að láta meta málið.
Það fer eftir eðli og umfangi máls. Á fyrsta fundi förum við yfir líklegan framgang og hvað má vænta í þínu tilviki.
Flest mál leysast án dómsmáls. Fari mál fyrir dóm sækir lögmaður stofunnar það fyrir þína hönd.
Gott er að hafa öll gögn er varða slysið meðferðis á fyrsta fund — t.d. lögregluskýrslu, læknisvottorð og tryggingaupplýsingar. Við aðstoðum við að afla þess sem vantar.
Það kostar ekkert að kanna rétt sinn
Hafðu samband án tafar. Engin skuldbinding. Áhættan er okkar, ekki þín.
Kanna rétt minn núna