Persónuvernd

1. Ábyrgðaraðili. Tjónið er þjónusta ESJA Legal ehf., kt. 470909-2180, Hlíðarfæti 15, 102 Reykjavík. Félagið er ábyrgðaraðili þeirra persónuupplýsinga sem unnið er með á tjonid.is. Fyrirspurnir um persónuvernd sendist á tjonid@tjonid.is.

2. Hvaða upplýsingar. Nafn og kennitala úr rafrænum skilríkjum við innskráningu; heimili, netfang og símanúmer sem þú gefur upp; lýsing á atviki og tjóni; heilsufarsupplýsingar, svo sem læknisvottorð og sjúkraskrá, sem þú leggur fram eða við öflum með umboði þínu; kvittanir og bankaupplýsingar vegna greiðslu bóta; og samskipti við okkur.

3. Tilgangur og heimild. Upplýsingarnar eru notaðar til að meta rétt þinn til bóta, reka málið gagnvart bótaskyldum aðila og gera það upp við þig. Vinnslan byggist á samningi okkar um þjónustuna og á lagaskyldum stofunnar, svo sem um bókhald. Heilsufarsupplýsingar eru unnar vegna þess að þær eru nauðsynlegar til að hafa uppi réttarkröfu fyrir þína hönd, samkvæmt lögum nr. 90/2018 um persónuvernd og vinnslu persónuupplýsinga og almennu persónuverndarreglugerðinni (ESB) 2016/679.

4. Hverjir fá upplýsingarnar. Bótaskyldur aðili, svo sem tryggingafélag eða ríkissjóður, og eftir atvikum Sjúkratryggingar Íslands, heilbrigðisstofnanir og matsmenn, að því marki sem málið krefst. Auk þess vinna eftirtaldir vinnsluaðilar með upplýsingar fyrir okkar hönd og aðeins samkvæmt fyrirmælum okkar:

5. Geymslutími. Upplýsingarnar eru geymdar meðan málið er rekið. Heilsufarsupplýsingum og öðrum gögnum málsins er eytt 18 mánuðum eftir uppgjör bóta, eða 18 mánuðum eftir að máli lýkur án uppgjörs. Kvittanir og uppgjörsblað eru bókhaldsgögn og eru, ásamt nafni þínu og kennitölu, geymd í sjö ár frá lokum reikningsárs, eins og lög um bókhald krefjast; að því loknu er þeim eytt. Stofan geymir engin gögn á pappír; þau eru skönnuð og pappírnum eytt.

6. Réttindi þín. Þú átt rétt á aðgangi að upplýsingum um þig, að fá þær leiðréttar, eytt eða vinnslu þeirra takmarkaða, að andmæla vinnslu og að fá þær afhentar á tölvutæku formi, innan þeirra marka sem lög setja. Sendu beiðni á tjonid@tjonid.is. Telji þú að ekki sé farið rétt með upplýsingar um þig getur þú kvartað til Persónuverndar (personuvernd.is).

7. Öryggi. Samskipti við vefinn eru dulkóðuð. Skjöl eru aðeins aðgengileg eftir innskráningu og hver aðgerð er skráð. Starfsmenn skrá sig inn með tveggja þrepa auðkenningu.

8. Vafrakökur. Sjá vafrakökur.