Skilmálar Tjónsins

DRÖG fyrir prufuútgáfu. Skilmálarnir sem umbjóðendur samþykktu í eldra kerfi koma í staðinn þegar gögnin berast frá Overcast.

1. Þjónustan. Tjónið er þjónusta ESJA Legal ehf., kt. 470909-2180, Hlíðarfæti 15, 102 Reykjavík. Lögmenn stofunnar gæta hagsmuna þinna við innheimtu bóta vegna líkamstjóns.

2. Þóknun. Þú greiðir enga þóknun nema bætur innheimtist. Þá er þóknunin 15% af greiddum bótum, að viðbættum virðisaukaskatti. Innheimtuþóknun sem bótaskyldur aðili greiðir sérstaklega rennur til stofunnar og dregst ekki af bótunum.

3. Umboð. Með umsókninni veitir þú lögmönnum stofunnar umboð til að afla gagna, þar á meðal sjúkraskrár, gera kröfur og taka við bótum fyrir þína hönd.

4. Persónuupplýsingar. ESJA Legal ehf. er ábyrgðaraðili vinnslunnar. Upplýsingarnar eru aðeins notaðar til að reka málið og geymdar eins lengi og lög krefjast. Þú átt rétt á aðgangi að þeim og leiðréttingu.

5. Samskipti. Við sendum þér tölvupóst um gang málsins og reglulegar áminningar meðan það er opið.