Fréttir

Ekið á þig á rafhlaupahjóli?

Ekið á þig á rafhlaupahjóli?

Landsréttur kvað upp dóm 12. nóvember í máli manns sem ekið var á, þegar hann fór á rafhlaupahjóli á leið til vinnu. Tryggingafélag bifreiðarinnar hélt því fram að hann hefði sýnt af sér stórkostlegt gáleysi og ætti því engar bætur að fá. Úrskurðarnefnd í vátryggingamálum hafði áður talið rétt að skerða bæturnar um helming.

Dómstólar voru á öðru máli.

Bætur fyrir líkamstjón verða aðeins skertar ef tjónþoli átti þátt í slysinu af ásetningi eða stórkostlegu gáleysi og það er tryggingafélagsins að sanna það. Það tókst ekki, og bótaskylda var viðurkennd án skerðingar.

Hvað er best að gera í þessum aðstæðum?

Jú, það er best að leita strax til læknis, fá lögregluskýrslu og nöfn vitna og samþykkja ekki skerðingu bóta án þess að láta meta hana.

Ef þú vilt fara yfir málin bjóðum við upp á ókeypis viðtöl til þess að skoða réttarstöðuna þína.

Hafðu samband við okkur á Tjonid.is.

← Allar fréttir