Bíddu ekki með kröfuna. Vextirnir fyrnast

Héraðsdómur Reykjavíkur kvað upp dóm 17. nóvember sl. í máli sjúklings sem varð fyrir líkamstjóni árið 2016 vegna tafa á greiningu sýkingar eftir liðskiptaaðgerð. Bótaskylda fékkst viðurkennd, en bæturnar voru ekki gerðar upp fyrr en níu árum eftir tjónið. Ríkið greiddi þá bæturnar en aðeins vexti fjögur ár aftur í tímann. Dómurinn taldi það rétt: Vextir af bótum fyrnast sjálfstætt á fjórum árum frá því að þeir falla á kröfuna, og mál um viðurkenningu bótaskyldu stöðvaði ekki þá fyrningu. Vextir margra ára töpuðust því. Á þessari stundu hefur ekkert frést af því hvort dóminum verði áfrýjað, en það verður þó að teljast líklegt.
Ef þú stendur frammi fyrir sambærilegum aðstæðum er rétt að hafa eftirfarandi í huga. Láttu meta tjónið um leið og það er tímabært og fylgdu kröfunni eftir allt til uppgjörs, því hver dagur sem líður getur kostað vexti.
Ef þú hefur lent í líkamstjóni, þá kostar ekkert að sækja um á tjonid.is.
