Slys um borð? Útgerðin ber ábyrgð

Samherji hefur gert það að skyldu að allir sem vinna á dekki á skipum félagsins skuli bera öryggishjálm. Ákvörðunin var tekin eftir slys um borð í Kaldbaki EA í nóvember í fyrra, þegar skipverji fékk krók í höfuðið og hlaut heilahristing. Rannsóknarnefnd samgönguslysa hefur fjallað um slysið.
Þetta er gott framtak. Með vinnu á dekki fylgir því miður alltaf hætta á slysum.
Margir sjómenn halda að þeir eigi aðeins rétt á bótum ef slysið verður rakið til mistaka útgerðarinnar eða bilunar í búnaði. Það er ekki raunin.
Samkvæmt siglingalögum ber útgerðin ábyrgð á líkamstjóni skipverja sem slasast um borð eða við vinnu í beinum tengslum við rekstur skipsins, þótt slysið verði hvorki rakið til bilunar, ónægra öryggisráðstafana né mistaka nokkurs manns. Útgerðinni er jafnframt skylt að kaupa tryggingu fyrir slíkum bótum. Sú ábyrgð er bundin við ákveðnar fjárhæðir, en sé slysið rakið til vanbúnaðar eða mistaka geta fullar skaðabætur komið til.
Hvað er best að gera í þessum aðstæðum?
Jú, það er best að leita strax til læknis, láta skipstjórann vita og gæta þess að slysið sé skráð og tilkynnt. Fáðu nöfn þeirra sem urðu vitni að slysinu, taktu myndir af aðstæðum ef þú getur og haltu utan um öll læknisvottorð.
Ef þú vilt fara yfir málin bjóðum við upp á ókeypis viðtöl til þess að skoða réttarstöðuna þína. Hafðu samband við okkur á Tjonid.is.
