Hálka á leið í vinnuna?

Vegagerðin varaði við því í gærkvöldi að töluverð hálka yrði víða um land nú í morgun, mánudaginn 9. nóvember. Sérstaklega var varað við hálku norðanlands en einnig á suðvesturhorninu -- og sums staðar flughált!
Með hálkunni fylgja því miður oft slys.
Ef þú lendir í hálku og meiðir þig, á leiðinni í eða úr vinnu, getur það fallið undir skilgreininguna á vinnuslysi. Lög um slysatryggingar almannatrygginga ná til slysa á eðlilegri leið milli heimilis og vinnustaðar, ef ferðin er farin samdægurs. Bætur úr þeirri tryggingu greiða Sjúkratryggingar Íslands og oft kemur slysatrygging launþega einnig til greina.
Hvað er best að gera í þessum aðstæðum?
Jú, það er best að leita strax til læknis, láta vinnuveitandann sinn vita og gæta þess að slysið sé tilkynnt til Sjúkratrygginga Íslands án tafar. Skráðu hvar og hvenær þú lentir í tjóninu og taktu myndir af aðstæðum ef þú getur.
Ef þú vilt fara yfir málin bjóðum við upp á ókeypis viðtöl til þess að skoða réttarstöðuna þína. Hafðu samband við okkur á Tjonid.is.
