Fréttir

Misstirðu stjórn á hálkunni?

Misstirðu stjórn á hálkunni?

Alvarlegt umferðarslys varð í Hveradalabrekku á Hellisheiði að kvöldi 22. október og var það rakið til hálku, sem þar myndast oft á örskammri stundu. Hálkan gerir ekki boð á undan sér. Margir halda að sá sem missir stjórn á eigin bíl eigi engan rétt til bóta. Það er rangt. Samkvæmt lögum um ökutækjatryggingar er hver ökumaður tryggður sérstakri slysatryggingu sem bætir hans eigið líkamstjón. Farþegar og aðrir vegfarendur eiga líka rétt á bótum úr ábyrgðartryggingu bílsins, þótt tjónið verði ekki rakið til ógætni ökumanns.

Ef þú lendir í slysi sem rekja má til ökutækis mælum við með því að þú leitir til læknis strax eftir óhappið, jafnvel þótt þér líði vel fyrst á eftir. Svo skaltu halda utan um öll gögn sem tengjast slysinu.

Ef þú vilt fara betur yfir réttarstöðuna þína þá er fyrsta viðtalið hjá Tjóninu ókeypis og án nokkurra skuldbindinga. Hafðu samband á tjonid.is.

← Allar fréttir