Fyrsta hálkan er komin

Lögreglan á höfuðborgarsvæðinu varaði í síðustu viku við hálku á götum, og fyrsta hálka vetrarins kemur mörgum í opna skjöldu. Ef þér verður hált á svellinu og dettur og meiðir þig, þá getur verið að frítímaslysatrygging, sem fylgir oft heimilis- eða fjölskyldutryggingu, bæti þér tjónið.
Það þarf þó að hafa hraðan á!
Fáir vita að samkvæmt 124. gr. laga um vátryggingarsamninga glatar sá rétti til bóta úr slysatryggingu sem gerir ekki kröfu til tryggingafélagsins innan árs frá því að hann fékk vitneskju um atvikin sem krafan byggist á. Ráð okkar er því þetta: leitaðu læknis strax, fáðu áverkann skráðan og tilkynntu slysið til tryggingafélagsins sem fyrst, jafnvel þótt meiðslin virðist smávægileg. Afleiðingarnar koma stundum ekki í ljós fyrr en löngu síðar.
Ef þú ert óviss um rétt þinn getur þú sent okkur fyrirspurn á www.tjonid.is, án endurgjalds.
