Fréttir

Slysið varð heima við

Slysið varð heima við

Flest slys verða ekki í umferðinni heldur á venjulegum degi: Í stiganum, á planinu eða á leiðinni út með ruslið. Þá halda margir að enginn bæti tjónið af því að enginn annar hafi verið að verki.

Það er algengur misskilningur.

Frítímaslysatryggingar í heimilistryggingum, kjarasamningum og greiðslukortum ná yfir fleiri tilvik en fólk áttar sig á, og eftir atvikum getur ábyrgð húseiganda eða sveitarfélags komið til. Hafi fólk mögulega verið búið að fá sér rauðvínsglas með kvöldmatnum áður en það lendir í slysi heima hjá sér, leiðir það ekki sjálfkrafa til þess að bótaskylda sé ekki til staðar -- ölvun getur bara skert bótarétt ef hún telst hafa falið í sér stórkostlegt gáleysi, sbr. 27. gr. laga nr. 30/2004 um vátryggingarsamninga. Þetta er metið hverju sinni.

Ef þú hefur lent í óhappi er einfalt að bregðast við án þess að það kosti nokkuð -- sendu okkur línu og við skoðum málið án þess að það kosti þig nokkuð.

← Allar fréttir